Jákvæðni - Ábyrgð - Vellíðan - Árangur

Fréttir


7. september 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Fjöruferð 7. bekkjar

Þá er skólastarfið komið á fulla ferð og 7. bekkingar fóru í fjöruferð í síðustu viku.

Skoðið myndir

 
2. september 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Dagana 6. – 10. september 2010

Vinavikan verður tileinkuð gildum Grandaskóla:

Jákvæðni - Ábyrgð - Vellíðan - Árangur

Þá er komið að hinni árlegu vinaviku hjá okkur hér í Grandaskóla. Í öllum bekkjum verður lögð sérstök áhersla á vináttu og samkennd. Unnin verða ýmis verkefni stór og smá. Líkt og undanfarin ár setjum við vinavikuna formlega á sal í byrjun skóladags á mánudag. Engar breytingar eru á stundatöflu nemenda þessa daga heldur verður þessi vinna fléttuð inn í hefðbundna kennslu.

Þessa viku verða tilbreytingadagar fyrir nemendur og starfsfólk og viljum við  biðja ykkur um að hvetja börnin ykkar til að taka þátt í þeim með okkur.

Mánudagur þá koma allir í skemmtilegum sokkum.
---------------------------------------
Þriðjudagur þá koma allir í úthverfum fötum.
---------------------------------
Miðvikudagur þá koma allir með uppáhalds tuskudýrið sitt og í einhverju röndóttu.
-------------------
Fimmtudagur þá koma allir koma brosandi og frumlegir um höfuðið. (hattar og eða  hárgreiðsla)
-------------------------
Föstudagur þá koma allir  íþróttalega klæddir eða í  náttfötum.
--------------
Með kveðju og von um að allir njóti vikunnar

Sjá nánar

 

 
27. ágúst 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Mentor verkefnið Vinátta

 
Grandaskóli er þátttakandi í Mentorverkefninu. Mentor verkefnið Vinátta hóf göngu sína haustið 2001 í samvinnu Velferðarsjóðs barna á Íslandi og Kennaraháskóla Íslands, Háskóla Íslands og tveggja grunnskóla í Reykjavík.

Kjarni verkefnisins er að háskóla- og framhaldsskólanemar veiti grunnskólabörnum á aldrinum 7-10 ára stuðning og hvatningu. Áhersla er lögð á gagnkvæman ávinning og að börn og ungmenni kynnist og læri af aðstæðum hvers annars. Háskóla- og framhaldsskóla-nemendur fá tækifæri til að vera fyrirmynd í lífi grunnskólabarns og börn í grunnskóla fá tækifæri til að mynda jákvæð tengsl við þroskaðan, fullorðinn einstakling utan fjölskyldu sinnar.
 
Samverustundir grunnskólanemenda og mentora eru þrjár í viku og koma þátttakendur sér saman um að gera eitthvað skemmtilegt. Þessar stundir þurfa ekki að vera úthugsaðar og skipulagðar því samveran er talin mikilvægust. 
 
Þetta er fjórða árið sem að Grandaskóli er aðili að Mentor verkefninu og höfum við ákveðið að bjóða nemendum í 5. bekk að taka þátt í verkefninu. Við erum mjög glöð yfir því að hafa fengið þetta tækifæri til að taka þátt í þessu verkefni sem hefur gefið mjög góða raun.
Umsóknarfrestur er til 3. september.
 
26. ágúst 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Skólabyrjun

6ara2010_023

Skólasetning Grandaskóla fór fram mánudaginn 23. ágúst. Nemendur foreldrar og starfsfólk komu þá saman í sal skólans. Börkur skólastjóri setti skólann og allir sungu saman. Í ávarpi sínu lagði Börkur áherslu á nýsamþykkt gildi skólans:  Jákvæðni, ábyrgð, vellíðan og árangur. Útdrátt úr ávarpinu má lesa hér.

Þriðjudaginn 24. ágúst komu foreldrar og nemendur í samtöl við umsjónarkennara sína og ræddu um skólastarfið framundan.  Mikil og góð mæting var í samtölin sem marka persónulega skólabyrjun hvers og eins og eru til þess fallin að treysta samskipti og samstarf heimilis og skóla.

Miðvikudaginn 25. ágúst hófst kennsla samkvæmt stundaskrá. Mestur atburður þess dags er jafnan skólabyrjun 1. bekkinga. Sólin skein í heiði og gleði og spenning mátti lesa úr andlitum nemenda og ekki síður foreldra.  

Myndir frá fyrstu skóladögunum má sjá hér.

Myndir frá skólasetningu

Fyrsti skóladagur 6 ára nemenda

 
9. ágúst 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Skólasetning Grandaskóla verður mánudaginn 23. ágúst kl. 9:00 á sal skólans.

Skóli hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 25. ágúst.

Innkaupalistar eru komnir á heimasíðu skólans og boð í nemenda/foreldrasamtöl munu berast foreldrum í vikunni.

Sjá innkaupalista

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 31

Hve margir gestir núna

 13 gestir Í heimsókn

[+]
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
  • fresh color
  • warm color