Jákvæðni - Ábyrgð - Vellíðan - Árangur



9. ágúst 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Skólasetning Grandaskóla verður mánudaginn 23. ágúst kl. 9:00 á sal skólans.

Skóli hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 25. ágúst.

Innkaupalistar eru komnir á heimasíðu skólans og boð í nemenda/foreldrasamtöl munu berast foreldrum í vikunni.

Sjá innkaupalista

 
7. júní 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Úrslit í Skólaþríþraut FRÍ og Iceland Express

 

Glæsilegur árangur náðist hjá nemendum Grandaskóla í úrslitakeppni Skólaþríþrautar FRÍ og Iceland Express sem haldin var föstudaginn 4. júní sl. í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Forkeppni Skólaþríþrautarinnar fór fram í grunnskólum landsins í vetur og var stigahæstu nemendum eftir forkeppni skólanna boðin þátttaka í úrslitakeppninni. Keppt var í 60m hlaupi, kúluvarpi og langstökki hjá strákum og stelpum í 6. og 7. bekk. Gefin voru stig fyrir árangur í öllum greinum sem myndaði samanlagðan heildarárangur.
Grandaskóli átti 5 keppendur í úrslitakeppninni en einungis 3 gátu mætt, þau Denis Hoda 6.R, Guðrún Þorláksdóttur einnig í 6. R og Eyjólfur Ásberg Halldórsson úr 7.R.
Stóðu þau sig öll með miklum ágætum þó svo að árangur Denis Hoda hafi staðið upp úr, en hann sigraði í flokki stráka í 6. bekk og hlaut að launum ferð til Svíþjóðar til að keppa á Gautaborgarleikunum sem fram fara 2.- 4. júlí. Sannarlega glæsilegur árangur hjá Denis.
Í einstökum greinum má geta þess að Denis sigraði í 60m hlaupi, varð annar í langstökki og fimmti í kúluvarpi, Eyjólfur Ásberg varð fimmti í 60m hlaupi, sjötti í langstökki og þrettándi í kúluvarpi, Guðrún varð í 9. sæti í 60m hlaupi og langstökki og 10. sæti í kúluvarpi.
Í samanlögðum heildarárangri lenti Eyjólfur Ásberg í 7. sæti í flokki stráka í 6. bekk og Guðrún lenti í 8. sæti í flokki stelpna í 6. bekk. 
Sannarlega glæsilegur árangur hjá krökkunum.
Sjá má árangur keppenda í einstökum greinum og lokastöðuna í þríþrautinni á www.fri.is.
 
 
4. júní 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil



Skólaslit Grandaskóla og útskrift 7. bekkinga.

Skoðið myndir

 

 
3. júní 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Föstudaginn 4. júní verða skólaslit og afhending vitnisburðar.

Foreldrar nemenda eru boðnir sérstaklega velkomnir á skólaslitin
Nemendur 1. – 6. bekkjar mæta á sal kl. 10:00 og  fá síðan afhentan vitnisburð hjá umsjónarkennurum í stofum.
Skólaslit 7. bekkjar verða kl. 12:00.
 
 
1. júní 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

2. bekkur fór í bæjarferð í blíðskaparveðri að skoða helstu byggingar borgarinnar í tengslum við námsefnið Komdu og skoðaðu: Land og þjóð. Eins og sjá má á myndunum áttum við skemmtilegan og góðan dag í miðborg Reykjavíkur.

Skoðið myndir

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 2 af 31

Hve margir gestir núna

 25 gestir Í heimsókn

[+]
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
  • fresh color
  • warm color