|
|

Ferð á Kjarvalsstaði
6.bekkur G fór í morgun í heimsókn á Listasafn Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum. Þar var tekið á móti okkur af safnakennara sem fræddi nemendur um Jóhannes Sveinsson Kjarval og list hans. Við skoðuðum Kjarvalssýninguna sem er yfirstandandi og nemendur unnu í lokin eitt verkefni útfrá henni.
Öllum 6. bekkingum í Reykjavík er boðið í heimsókn á Kjarvalsstaði ár hvert og greiðir Listasafn Reykjavíkur fyrir rútuferðir þangað. Við höfum ávallt notið þessara heimsókna og ferðin í morgun var engin undantekning frá því.
Skoðið myndir |
|
|

Handboltahátíð
Boðið var til samveru starfsfólks, nemenda og foreldra yfir leik Íslendinga og Norðmanna í Evrópumótinu í handbolta.
Góð stemming var í salnum og við erum sannfærð um að við höfum lagt okkar að mörkum í að styðja strákana okkar til sigurs. Í það minnsta skemmtum við okkur vel eins og sjá má á myndunum og ekki spilltu úrslitin.
Áfram Ísland!
Skoðið myndir |
|


100 daga hátíð
Í dag var hin árlega 100 daga hátíð 6 ára nemenda.
Þegar nemendur í 6 ára bekk hafa lokið 100 daga skólagöngu í Grandaskóla er haldið upp á það.
Farið var í skrúðgöngu um skólann, sungið, dansað og í íþróttasalinn
Skoðið myndir Myndir á YouTube skrúðganga 1 2 |
|
Góður árangur á samræmdum prófum.
Skömmu fyrir jólaleyfi bárust niðurstöður úr samræmdum prófum í 4. og 7. bekk. Árangur nemenda skólans var góður og var meðaleinkunn bæði yfir landsmeðaltali og meðaleinkunn Reykjavíkur. Sjá nánar hér. |
|
Gleðilegt ár
Skólastarf hófst að loknu jólaleyfi þann 5. janúar og hefur farið vel af stað á þessu nýja ári. Við þökkum gott og gefandi samstarf liðinna ára og væntum góðs af komandi tímum. |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 10 af 31 |