Jákvæðni - Ábyrgð - Vellíðan - Árangur



15. mars 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Fréttabréf mars

 
15. mars 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Frábær föstudagur!

Heilsu-, hreyfingar- og útivistadagurinn okkar 12. mars, tókst afskaplega vel. Veðrið lék við okkur og bros var á hverju andliti. Allir tóku þátt og fengust við ýmis skemmtileg verkefni, t.d. boðhlaup, nudd, jóga, þrautahring, pógó, ratleik og margt margt fleira. Að loknum deginum fóru allir glaðir heim, bæði starfsfólk og nemendur.

Svona dag höfum við örugglega aftur seinna.

Skoðið myndir

 
11. mars 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Öðruvísi dagur á föstudaginn !!
Föstudagurinn 12. mars verður „öðruvísi dagur“ í Grandaskóla. Þann dag ætlum við að leggja sérstaka áherslu á heilsu, hreyfingu og útivist og vinna saman að ýmsum verkefnum sem tengjast því. Öllum nemendum skólans verður blandað í hópa óháð aldri og fer hver hópur í 3 verkefni yfir daginn. Skólatími allra nemenda verður frá kl. 8:30 til 13:30 þennan dag og nemendur þurfa ekki að hafa meðferðis skólatösku, aðeins eitthvað fyrir morgunnestið sitt. Allir nemendur byrja daginn og ljúka honum í umsjónarstofum sínum. Nauðsynlegt er að allir séu vel klæddir til útivistar.

Ef einhverjir foreldrar eiga þess kost og hafa áhuga á að taka þátt í þessum degi með okkur, væri gott að þeir létu okkur vita í síðasta lagi á fimmtudag vegna skipulags.
 
5. mars 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Foreldrakönnun.

Menntasvið Reykjavíkur skoðar með reglubundnum hætti viðhorf foreldra til grunnskólastarfs í Reykjavík. Tekið er úrtak úr foreldrahópi hvers skóla þannig að ásamt heildarmynd af viðhorfum foreldra í Reykjavík, birtist mynd af viðhorfum foreldra barna í Grandaskóla til ýmissa þátta í starfi skólans. Í Grandaskóla voru 86 foreldrar í úrtakinu og fengust svör frá 58 þeirra eða um 67,4%. Þó ekki sé um hátt svarhlutfall að ræða, koma fram vísbendingar sem gagnast geta við umbótastarf í skólanum.  Þá er gleðilegt að sjá að 95% svarenda segjast vera ánægðir með Grandaskóla og hefur ánægja foreldra með skólann verið að aukast sé litið til tveggja síðustu kannanna. Niðurstöðurnar í heild má skoða hér

 
4. mars 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Samfélagsfræði 3. bekkur

Í samfélagsfræði hafa börnin í 3. bekk verið að fræðast um húsdýrin og lásum við bókina um Æsu og Gauta í sveitinni í tengslum við það verkefni.    Börnin gerðu myndir af húsdýrunum og buðu svo foreldrum sínum á kynningu, þar sem þau stóðu sig með mikilli prýði.
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 8 af 31

Hve margir gestir núna

 35 gestir Í heimsókn

[+]
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
  • fresh color
  • warm color