Jákvæðni - Ábyrgð - Vellíðan - Árangur



7. apríl 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Stóra upplestrarkeppnin – lokahátíð.



Fimmtudaginn 25. mars var lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Ráðhúsi Reykjavíkur.  Fulltrúar frá Grandaskóla  voru  þær Helena Hafsteinsdóttir og Rósa Björk Ásmundsdóttir í 7.bekk. Þær stóðu sig báðar mjög vel.

Skoðið myndir

 

 
24.mars 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Stóra upplestrarkeppnin – lokahátíð.

Fimmtudaginn 25. mars verður lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Ráðhúsi Reykjavíkur.  Á hátíðinni koma fram fulltrúar frá Austurbæjarskóla, Grandaskóla, Háteigsskóla, Hlíðaskóla, Landakotsskóla, Melaskóla og Vesturbæjarskóla. Fulltrúar Grandaskóla  eru þær Helena Hafsteinsdóttir og Rósa Björk Ásmundsdóttir.

Hátíðin er öllum opin og hefst klukkan 16:30.

 
19. mars 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Góður fundur um teymiskennslu

Fimmtudagskvöldið 18. mars hélt skólaráð opinn fund fyrir foreldra og starfsfólk, um teymiskennslu í Grandaskóla. Fundurinn tókst vel, framsögur voru fróðlegar og skemmtilegar og umræður góðar. Mæting á fundinn olli samt nokkrum vonbrigðum. 16 starfsmenn mættu á fundinn en aðeins 12 foreldrar. Sem sagt - fámennt en afar góðmennt og mikið svigrúm til að gera betur.

 
18. mars 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Stóra upplestrarkeppnin

Lokaumferð Stóru upplestrarkeppninnar í Grandaskóla fór fram fimmtudaginn 18. mars. Sex nemendur úr 7. bekk kepptu þá til úrslita um að verða fulltrúar skólans á lokahátið keppninnar í Ráðhúsinu fimmtudaginn 25. mars. Nöfn þeirra sem lásu eru: Bergþór Snær Jónasson, Egill Ástráðsson, Ellen Geirsdóttir, Helena Hafsteinsdóttir, Lárus Jakobsson og Rósa Björk Ásmundsdóttir.

Krakkarnir stóðu sig öll frábærlega og skemmtu áhorfendum með vönduðum lestri á sögu og ljóðum.

Dómnefnd var því vandi á höndum við val sitt en niðurstaðan var að þær Helena og Rósa voru valdar sem fulltrúar skólans og Ellen til vara. Öllum lesurunum og kennurum þeirra, þeim Arnheiði og Sveinfríði, er þakkað fyrir þessa skemmtilegu stund. Til hamingju.

Skoðið myndir

 
15. mars 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Fréttabréf mars

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 7 af 31

Hve margir gestir núna

 14 gestir Í heimsókn

[+]
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
  • fresh color
  • warm color