|
|
Barnamenningarhátíð 4.bekkur

4. bekkur tók þátt í opnunargöngu Barnamenningarhátíðar síðastliðinn mánudag 19. apríl. Einkenni okkar var stórrósótt eða blómótt. Höfðum við því skreytt okkur með blómum á kinn og hnýtt blómabönd um höfuð og háls. Krakkarnir bjuggu til blómaveifu sem flaggað var í göngunni. Dagurinn var skemmtilegur, bjartur, fallegur en kaldur. Því bar meira á kuldaúlpum en blómaskreytingum.
Skoðið myndir |
|
|
Barnamenningarhátíð - 6. bekkur

Í tilefni af Barnamenningarhátíð á vegum Reykjavíkurborgar tóku 6.bekkirnir þátt í verkefni sem fólst í að vinna sjálfsmyndir með Collage tækni eða sem klippimynd. Þema sýningarinnar er Hver er ég? og nemendur unnu verk hver á sinn hátt um sig sjálfa. Afraksturinn má sjá þessa dagana á Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu eða þar til Barnamenningarhátíð lýkur þann 25. apríl.
Hér má sjá myndir af nemendum að störfum og úr heimsóknum í Hafnarhúsið . |
|
2. bekkur Íslandsverkefni

Undanfarna daga höfum við í 2.bekk verið að segja frá ferðalögum okkar um Ísland.
Við höfum skoðað landakortið vítt og breitt og fræðst um staði, söfn og sögur tengdar stöðunum.
Hér erum við að segja frá verkefnunum og sýna hvar við vorum á Íslandi.
Nemendur voru mjög áhugasamir og fróðleiksfúsir.
Skoðið myndir |
|
Spurningakeppni nemenda 5.-7.bekkja í Grandaskóla

Hér eru myndir frá spurningakeppni sem haldin hefur verið í Grandaskóla undanfarnar vikur á milli 5.-7.bekkja. Úrslitin réðust í síðustu viku en það voru þau Jóhannes Helgason, Sólborg Birgisdóttir og Þórir Guðmundur Þorbjarnarson í 7.G sem að hrepptu 1.sætið.
|
|
4. bekkur á kafi í dagblöðum

Við fáum dagblöð send á hverjum morgni og nemendur vinna í verkefnabókinni " Dagblöð í skólum". Verkefnin tengjast markmiðum íslenskukennslunnar í vetur og eru skemmtileg viðbót.
Skoðið myndir |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 6 af 31 |