Jákvæðni - Ábyrgð - Vellíðan - Árangur



5. maí 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

7. bekkur í Hafnarhúsinu

Í morgun fór lotuhópur í myndmennt á sýningu útskriftarnema úr Listaháskólanum í Hafnarhúsinu.
Við skoðuðum margt forvitnilegt og fræddumst um hinar ólíku greinar sem eru kenndar þar s.s. arkitektúr, vöruhönnun, fatahönnun og myndlist.

Frábær ferð en við náðum því miður ekki að skoða allt. Sýningin er opin út þessa viku og vert er að minna á að ekkert kostar að fara á Listasafn Reykjavíkur og allir ávallt velkomnir.

Skoðið myndir

 
4. maí 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Safnadagar hjá 5. bekk

 

5. bekkur var duglegur við að heimsækja söfn í apríl. Í tengslum við Íslandssögu fóru nemendur bæði á Þjóðminjasafnið og Landnámssýninguna í Aðalstræti. Þar fræddust nemendur um fyrstu ár Íslandsbyggðar.

Á Barnamenningarhátíð fóru nemendur á Listasafn Íslands og skoðuðu sýninguna Dyndilyndi. Þar leiddu saman hesta sína börn, hönnuðir, myndlistarmenn, arkitektar, dansarar, leikarar, rithöfundar, hljóðmyndasmiðir og tónskáld. Börn kveiktu hugmyndir hjá listafólkinu, sem síðan vann með þeirra hugmyndir og kveiktu svo aftur nýjar hugmyndir hjá börnunum.

Skoðið myndir

Þjóðminjasafn og Landnámssýning     Listasafn Íslands-Dyndilyndi

 
29. apríl 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Hvalaskoðun



7. bekk í Grandaskóla var boðið í hvalaskoðunarferð með Eldingunni í dag.
Ferðin var mjög ánægjuleg í alla staði.
Hrefnur, hnísur og höfrungar léku sé allt í kringum bátinn og köfuðu jafnvel undir hann.
Veðrið var yndislegt og gott í sjóinn.
Frábær dagur á Faxaflóa.

Skoðið myndir

 
26. apríl 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil



Nemendur í 3. bekk héldu upp á afmæli bekkjarbangsanna, þeirra Dodda og Snúllu sem eru tveggja ára í dag.
Í tilefni af því máttu börnin koma með dót í skólann. Einnig var boðið upp á djús og poppkorn.

 
26. apríl 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Barnamenningarhátíð 6.bekkur



6.bekkingar Grandaskóla fóru í vísindaleiðangur föstudaginn 23. apríl.
Farið var í Norrænahúsið á sýningu sem ber heitið Tilraunalandið.
Krakkarnir skoðuðu þar margt furðulegt og skemmtilegt úr heimi vísindanna.

Annar bekkurinn fór hjólandi, hinn í strætó og gangandi en allir í sólskinskapi á þessum bjarta "sumardegi."

Skoðið myndirnar. 6-G   6-R

 

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 5 af 31

Hve margir gestir núna

 27 gestir Í heimsókn

[+]
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
  • fresh color
  • warm color