Jákvæðni - Ábyrgð - Vellíðan - Árangur



15.september 2008 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Skólaskógar
alt

Nemendur 5. bekkjar fóru í Skólaskóga og fengu þar leiðsögn
um hvernig best er að gróðursetja birki. Hver nemandi fékk
þrjú birkitré til að setja niður. Allir stóðu sig með prýði
og unnu af kappi við gróðursetninguna.

Skoðið myndir

 
9.september 2008 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

alt
Alviðra
Þriðjudaginn 9.september fóru nemendur 6.G í Alviðru sem er fræðslusetur Landverndar.
Verkefni ferðarinnar var “Náttúran í haustskrúða”.
Áhersla var lögð á náttúruupplifun, plöntugreiningu og gróðurfar.
Einnig var hugað að smádýrum, ám,fjöllum og menningarminjum sem á vegi urðu.
Kanínur, lifandi vatnafiskar og uppstoppaðir fuglar voru meðal þess sem nemendur handléku í Alviðru.
Eins og sjá má á myndunum var svolítið blautt þennan dag en nemendur létu það ekki á sig fá
og léku á alls oddi undir góðri leiðsögn Hjördísar Ásgeirsdóttur umsjónarmanns fræðsluseturs í Alviðru.

Sjá myndir

 
8.september 2008 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

 alt
Vinavika Grandaskóla
Allir eru góðir í einhverju
8.-12. september 2008

Þessa viku verða tilbreytingadagar fyrir nemendur og starfsfólk
og viljum við biðja ykkur um að hvetja börnin ykkar til að taka þátt í þeim með okkur.


Mánudagur
Allir koma brosandi glaðir í skólann með skemmtilega hárgeiðslu eða höfuðföt
---------------------------------------
Þriðjudagur
Allir koma í skrautlegum bolum eða peysum
---------------------------------
Miðvikudagur
Allir koma með uppáhalds tuskudýrið sitt
-------------------
Fimmtudagur
Allir koma í sitthvorum sokknum
-------------------------
Föstudagur
Allir í náttfötum

Skoðið myndir

 
8.september 2008 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Alviðra

alt


Fimmtudaginn 4. september fórum við í heimsókn í Alviðru.
Þar tók Hjördís umsjónarmaður Alviðru á móti okkur.
Eftir nesti fórum við í gönguferð um Öndverðarnes og söfnuðum
plöntum og skráðum nöfn þeirra niður á blað.
Einnig tíndum við skordýr. Þegar við komum aftur í
Alviðru gerðum við veggspjöld með plöntunum á.
Svo snæddum við hádegisverð.
Eftir matinn fórum við í útihúsin og skoðum dýrin.
Þar voru kanínur, bleikjur og urriðar í fiskabúri
(kanínurnar voru ekki í fiskabúri), svo voru hestar úti.
Í hlöðunni var líka stór róla. Að lokum var frjáls tími og
þá máttum við klifra í trjánum, róla okkur eða skoða dýrin betur.

Kær Kveðja 6. bekkur R

Sjá myndir

 
26.ágúst 2008 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Skólasetning
alt

Í dag 26. ágúst var fyrsti skóladagur 6 ára nemenda.

Sjá myndir

Sjá fleiri myndir frá fyrsta skóladegi í Grandaskóla

 
Fleiri greinar...
<< Upphaf < Fyrri 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 Næsta > Endir >>

Síða 30 af 31

Hve margir gestir núna

 10 gestir Í heimsókn

[+]
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
  • fresh color
  • warm color