Jákvæðni - Ábyrgð - Vellíðan - Árangur



1. júní 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Fimmtudaginn 3. júní

lýkur skóladegi nemenda með hádegismat að lokinni kennslu kl. 11:30.
Þennan dag er Undraland lokað og því engin gæsla fyrir yngri nemendur að loknum skóla.
 
Föstudaginn 4. júní
verða skólaslit og afhending vitnisburðar.
Nemendur 1. – 6. bekkjar mæta á sal kl. 10:00 og  fá síðan afhentan vitnisburð hjá umsjónarkennurum í stofum.
Skólaslit 7. bekkjar verða kl. 12:00.
Foreldrar nemenda eru boðnir sérstaklega velkomnir á skólaslitin.
 
1. júní 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

 

Skólaárið 2010 - 2011

Skóladagatal Grandaskóla fyrir næsta skólaár er nú tilbúið og má nálgast það hér. Sömuleiðis hefur verkefnum verið raðað á kennara, þar með talið hverjir hafa umsjón nemenda með höndum og má sjá hér hverjir verða umsjónarkennarar bekkja/árganga á komandi vetri. Þó verður að gera þann fyrirvara að breytingar gætu orðið ef aðstæður krefjast.

 
28. maí 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Þemadagar

Í vikunni voru hinir árlegu þemadagar Grandaskóla. Sem fyrr var þemað Margt býr í fjörunni. Nemendur fóru í fjölda mismunandi ferða og unnu margvísleg verkefni í fjörunni og við höfnina. Veðrið var frábært og nemendur urðu margs vísari um lífið í fjörunni og margt annað.

Mikið af myndum og nánari upplýsingum eru komnar á heimasíðuna sem segja meira en mörg orð.

Sjá heimasíðu um þemadaga

 
27. maí 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Vorhátíð Grandaskóla og foreldrafélagsins



Fimmtudaginn 27. maí
var glens og gaman á skólalóðinni okkar.
 

Skoðið myndir.
 

 
21. maí 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

„Margt býr í fjörunni“



Þemadagar í Grandaskóla verða þriðjudaginn 25. og miðvikudaginn 26. maí.
Foreldrar vinsamlegast athugið að:
·       Skóladagar nemenda verða skv. stundatöflu. Mæting í skóla kl. 8:30 (undantekning 6. bekkur, sjá neðar)
·       Óhefðbundin dagskrá milli kl. 8:30 og 11:30.
·       Hefðbundin kennsla skv. stundaskrá frá 11:50.                          
·       Engar íþróttir né aðrar sérgreinar eru á dagskrá fyrir hádegi.       
·       Skólasund fellur niður.                                                                
·       Mikil útivist hjá öllum.                                          
·       Nauðsynlegt að vera klæddur við hæfi – stígvél. 
·       Nesti þarf að vera í handhægum pokum.
---------------------------------------------------------------------------------------------------------
1. og 2. bekkur verða í Ægissíðufjöru
3. bekkur  verður við Bakkatjörn á Seltjarnarnesi á þriðjudag og í Sörlaskjólsfjöru á miðvikudag
4. bekkur verður við Nesstofu og í fjöru við Bakkatjörn og út fyrir golfvöll á Seltjarnarnesi
5. bekkur verður í Gróttufjöru norður og í fjöru við dælustöð Eiðsgranda
6. bekkur fer á Sjóminjasafnið Víkina og í sjóferð um Sundin. Mæting er við Grófarskála á Miðbakka við Reykjavíkurhöfn á þriðjudag hjá 6G og á miðvikudag hjá 6R vegna sjóferðar. Lagt verður af stað stundvíslega kl. 8:30.
7. bekkur verður á Hafnarsvæði
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 3 af 31

Hve margir gestir núna

 42 gestir Í heimsókn

[+]
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
  • fresh color
  • warm color