Eineltiskönnun í Grandaskóla - mars 2006
Hluti af eineltisáætluninni er að leggja fyrir sömu könnun á einelti í skólanum með árs millibili.
Hjá okkur var hún fyrst lögð fyrir 25. febrúar 2005 í 4.-7. bekk. Seinni könnunin fór fram vikuna 13. - 17. mars 2006.
Þátttaka var 95.1 % eða 205 nemendur í 4. - 7. bekk. Öll gögn eru yfirfarin og gæðatryggð af Olweus-gruppen, Háskólanum í Bergen, Noregi.

Helstu niðurstöður frá marskönnun 2006:

Líðan:

   
 

Ein af meginstoðum í stefnu Grandaskóla er að nemendum líði vel í skólanum. Þeim nemendum sem líkar vel eða mjög vel fjölgar um leið og þeim sem líkar illa eða mjög illa fækkar. Þetta er ánægjuleg staðreynd og vísbending um að eineltisáætlunin hafi áhrif.

 

 

Einelti:    
 

Þegar nemendur eru spurðir að því hvort þeir séu lagðir í einelti svara 6,8 % því að þeir séu lagðir í einelti tvisvar til þrisvar í mánuði eða oftar. Samkvæmt þessum tölum dregur úr einelti hjá stúlkum en það virðist aukast hjá drengjum. Breyttur skilningur á hugtakinu einleti í kjölfar aukinnar umræðu í bekkjunum getur verið orsökin á aukningu hjá strákunum.

Umsjónarkennarinn:    
 

Hér sjáum við þá sem merkja við fremur lítið, lítið eða ekkert, við spurningunni:
Hve mikið finnst þér að umsjónarkennarinn hafi gert til að koma í veg
fyrir einelti undanfarna mánuði?
Greinilegt er að nemendur finna breytingu á viðbrögðum kennara í eineltismálum.

Hvar - piltar:    
  Eitt af megin markmiðum okkar í Olweus innleiðingunni var að draga úr einelti á skólalóðinni. Greinlegt er á þessum glærum að eftirlitskerfið sem við endurskipulögðum og unnum eftir í allan vetur hefur haft tilætluð áhrif.
Hvar - stúlkur:    
   
Í heildina má segja að Grandaskóli komi vel út í eineltiskönnuninni. Þó er ýmislegt sem við getum gert til að bæta okkur. Olweus-áætlunin snýst um skólabrag þar sem hlýja, virðing og festa einkennir öll samskipti í skólanum. Við vinnum að því að breyta afstöðu nemenda til eineltis. Þau læra með okkar hjálp hvað einelti er, hversu slæmt það er og að við líðum ekki einelti í Grandaskóla. Besti árangur næst ef allir sem koma að uppeldi barnanna okkar standa saman og beina sjónum sínum að þeim þáttum sem gera gæfumuninn í baráttunni gegn einelti.
Við munum í haust kynna vel fyrir aðstandendum nemenda okkar eineltisáætlun Grandaskóla og einnig verður farið nánar í helstu niðurstöður könnunarinnar. Aðstandendur og aðrir áhugasamir geta ávallt haft samband við okkur til að fræðast meira. Einnig má lesa allt um Olweus á olweus.is
Næsta könnun fer fram í nóvember 2006.